Edda

Ég heiti Edda. Ég er utan að landi, nánar til tekið frá Flúðum! alveg yndislegum stað sem allir ættu að koma allavega einu sinn á ;) er frekar stolt Flúðastelpa sko ;) Ég á einn albróðir, tvo hálfbræður og einn stjúpbróðir svo ég á fremur litríka fjölskyldu :)

Ég er rosalegur súkkulaði sjúklingur og elska allt sem svo mikið sem inniheldur eitthvað smá! Reyndar fer það svolítið í skapið á mér svo ég þarf að draga örlítið úr smjattinu á því.

Helstu áhugamálin mín eru svona útileigur, hangs í sundi, rölt úti og fleira... Og núna get ég loksins sagt að það sé líkamsrækt :) Ég nefnilega byrjaði að fara í ræktina á Bifröst haustið 2006 með þjálfara og það gekk svona helvíti vel. Núna mæti ég 6 morgna í viku í Spothúsið og æfi af krafti.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Edda Ósk Wyrwich Tómasdóttir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband