Brjóstamóða

Þessi brjóstamóða er alveg að gera útaf við mig, ég man ekkert stundinni lengur og er svo utan við mig að það er hreint ótrúelgt að fólk nenni yfirleitt eitthvað a ðreyna að tala við mig. Ég er að fatta löngu eftir að ég hætti að tala við fólk hvað það var að segja og þá að ég bara steingleymdi að svara því hehe... pínu asnalegt þannig að það eru örugglega nokkrir að velta fyrir sér hvaða furðufugl ég sé eiginlega eða að ég nenni ekki að tala við það. Vona bara að mér sé sýndur smá skilningur á þessu rugli mínu.

Núna til dæmis man ég ekkert hvað ég ætla að blogga um en ég man það að það var eitthvað sem ég gleymdi í gær :)

Vona að ég ranki við mér fljótlega, þetta getur ekki verið gott þegar maður er að reyna að klára eitt stk háskóla.

Edda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú værir eldri þá flokkast þetta undir elliglöp :) styttist í þau hjá mér. Vona að þú farir að muna hvað þú ætlaðir að skrifa ég er orðin forvitin.

Knús til ykkar allra

Mamma

Mamma (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband