mín skoðun...

... og enganvegin ættingja minna Gasp

En þetta eru frábærar fréttir fyrir Vinstri græna þeir eiga þetta sko skilið, er mikill aðdáandi Steingríms J.


mbl.is Vinstri-grænir með 23,6% en Samfylking 18,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannskemmandi

Eins og ég hef alltaf sagt... þessi íþrótt er mannskemmandi. Maður er í stór hættu í hvert sinn sem maður lætur eitthvað neikvætt útúr sér um fótbolta... held ég sé nokkuð örugg hérna ein heima með soninn núna svo ég segi það sem mér sýnist hehehe... LoL

Þakka fyrir hverja helgi að Jón minn er ekki með þetta syndrom.


mbl.is Valencia og Inter eiga yfir höfði sér þungar refsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn um American next top model

jahá
Online Videos by Veoh.com

Fréttir úr sveitinni

Hola

Cómo esta? Cool haha... Jæja við litla fjölskyldan ákváðum að panta okkur sumarhús á Spáni aftur þetta árið og í þetta sinn ætlum við 6. ágúst og vera í 2 vikur. ooohh hvað það verður notarlegt eftir sumartörnina í skólanum. Get eiginlega ekki beðið þó það séu heilir 5 MÁNIÐIR þangað til!!

En jæja prófin byrja 19. mars svo maður er bara á kafi í lærdómi þessa dagana sem og að reyna að plana missó sem tekur við strax eftir próf. Feðgar á fjalli

Við litla fjölskyldan ákváðum þar síðustu helgi að nota góða veðrið og skelltum okkur á Grábrók, sá stutti gekk alla leið upp en fékk svo far með pabba sínum niður. Hérna eru sætu strákarnir mínir og Bifröst á að vera í baksýn svo það er hér að neðan :)

BifröstVið fórum svo síðustu helgi vestur í afmæli til Sigga, mág míns, sem varð þrítugur kallinn. það var nú ansi hart skotið á kallinn þar sem hann er auðvita enn hjá mömmu og afmælisveislan minnti óneitanlega á fermingaveislu hí hí...

Meira hef ég nú varla að segja í bili.. jú takk fyrir kveðjuna Anna Sigga, mamma sagðist hafa hitt þig í Leifstöð á mánudaginn Smile Vonandi förum við að rekast á hvor aðra fljótlega.

Jæja reyni að skrifa fljótlega aftur...

Edda


Látið fara vel um sig...

letilífTinna sæta var fremur uppáþrengjandi í gærkvöldi þegar hún kom sér svona líka skemmtilega fyrir á lærinu á mér, það var nú ekkert þægilegt sko, læsti klónum í mig til að halda sér ef hún hélt hún væri að detta Smile

Þetta er svo frábært...

...en!! djö ég er svo spæld, langar ekkert að missa af þessum fyrirlestri en ég þarf að vera mætt kl 10 í smáralind í IMCB á föstudaginn Frown  
mbl.is Magnús Scheving heldur fyrirlestur við Háskólann á Bifröst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

brjálað að gera

Ég get svarið það... síðustu vikur hefur varla verið tími til að anda. Enda bara rétt ræpar 4 vikur í próf, sem byrja 19. mars.

En hérna er bara ágætt að frétta, ef ekki komist í ræktina í 1 og hálfa viku fyrir verkefnum í skólanum en ætla að reyna að komast í dag eða á morgunn ef heilsan leifir. Gengur ekki svona hangs.

Helgin var frábær þrátt fyrir að ég hafði engan tíma til þess að vera á þvælingi en við reyndum að rumpa öllum verkefnum af fyrir helgi og það tókst ótrúlega vel bara. Við Jón minn fórum semsagt á Geysi á laugardaginn og fengum þessa fínu "svítu" veit ekki hvort ég geti kallað þetta svítu hehehe... en þetta á samt að vera það. Þarna var ekki mínibar/ískápur og ekki sími til að hafa samband við lobbý og drulluspark fyrir utan, þurftum semsagt að labba 50 m í drullu til að komast á hótelið. En fyrir utan það þá höfðum við það auðvitað mjög gott. Unglandslið kokka eldaði handa okkur um kvöldið og var það bara alveg ágætt... eða eiginlega allt mjög gott nema humarinn Sick úff og ég elska humar sko. þetta var eitthvað froðu ógeð með roði hehehe... En það sem eiginlega toppaði þetta var að ég hitti gamla vini þarna, Marinó Fanna og Gumma Kalla, get svo svarið að ég hef hvotugan hitt í svona 6-8 ár og eiginlega ætlaði ég ekki að þekkja Gumma Kalla svona loðinn í framan en Fannar hafði ekkert breyst Wink Sé eiginlega mest eftir því núna að hafa ekki spjallað meira við þá en einhvernvegin vildi ekki gera Jóni það þar sem hann þekkir þá auðvita ekki neitt.

jæja þetta voru smá fréttir... ætla að halda áfram að fylgjast með Lobba

Edda


JÁ....

...er þetta ekki svolítið dularfullt? varla hálft ár síðan Sonur hennar lést. Bandit 

Hérna eru fleiri fréttir af US magazine


mbl.is Anna Nicole Smith látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veikindi í sveitinni

Guttinn er búinn að vera veikur síðan á mánudaginn, var kominn með hita þegar hann kom af leikskólanum og var með 40 stig um nóttina Sick Það var ekkert sérlega mikið sofið yfir því. Pabbi hans á næturvakt og svona skemmtilegheit, hann var skárri í gærdag en fékk aftur hita í gærkvöldi en ekki alveg jafn háan. Núna er hann alveg óþekkur og allt svo hann er að jafna sig.

Við förum bæði til læknis í dag, tíminn minn hjá Grétari er víst í dag og gæti varla komið á heppilegri tíma Wink ooohh og finnst hann er í kringlunni þá ætla ég sko að kíkja eftir einhverjum fötum finnst helv... útsölurnar eru búnar LoL vííííhaaaaaa...

Svo var verið að bjóða mér á hótel og út að borða InLove og jú auðvitað bauð Jón mér hí hí hí... Get ekki beðið þurfum alveg alonetime saman núna. Heart

Edda InLove


Hjartans mál

Tyra Banks talar um jólaspikið... pínu fyndið að láta þetta hafa svona áhrif á sig. Hvenar koma Oprah og Kirstie Alley að afsaka sig.

http://www.youtube.com/watch?v=evElK5ycey4

 Edda

 kann ekki að setja myndbandið svona inn hehehe...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband