Sumarfrííííí

Jæja þá er ég loksins komin í sumarfrí eftir stranga sumartörn í skólanum, eða eiginlega má segja að það sé búin að vera stanslaus törn síðan 2. janúar. Fengum lítið sem ekkert páskafrí vegna missó svo þetta er mjög svo kærkomið frí.

Síðasta lotan var reyndar alveg ótrúlega skemmtileg þrátt fyrir takmarkaðana markaðsfræðiáhuga minn. Markaðs- og vörumerkja stjórnun eða branding. Það bjargaði því alveg að kennararnir gerðu þetta að mjög skemmtilegu efni bæði með fyrirlestrum og verkefnum. Fengum að greina vörumerki í fyrsta einstaklingsverkefninu og ég valdi mér Cintamani og Cheerios, ég fékk mjög góða endurgjöf og 8,5 í einkunn. Svo tókum við í hópverkefninu um táknræn merki Egils Appelsín, komum reyndar ekki alveg til skila hvað okkur fannst táknrænt við það en gerðum kynninguna okkar flotta með því að bjóða uppá appelsín í gleri og lakkrísrör með ásamt því að gefa leiðbeiningar um hvernig bera á sig að með lakkrísrörið. Endurgjöfin var ágæt en fær mig alveg til að roðna smá Blush en ég "fipaði" smá í kynningunni eftir að Linda gerði setninguna að einhverju öðru en hún átti að vera

"Láta lakkrísrörið liggja og marenerast í Appelsíninu í dágóðan tíma eða þar til það sá hluti lakkrísrörsins sem liggur ofan í Egils Appelsíninu hefur linast og bólgnað örlítið út." 

Ekki spyrja! ég sé ekkert athugavert við þetta núna svo ég kenni Lindu alfarið um þessi mistök mín.

Jæja nóg af skólanum núna... Þetta eru búnir að vera ágætis frídagar, Birgir bróðir var hjá okkur í viku og fór í gær. Ég labbaði með hann og Gylfa Rúnar uppá Grábrók og til baka á laugardaginn, við fundum alveg helling af bláberjum á leiðinni og vorum í mestum vandræðum að ná Gylfa Rúnari frá þeim. Hann var alveg sjúkur í þau. Fórum svo í sund í Borgarnesi á sunnudagsmorguninn og renndum okkur svolítið í rennibrautinni, allt saman bara ágætis afslöppun. Núna er Tara Sól vinkona okkar í heimsókn hjá okkur því leikskólinn er lokaður, Gylfi Rúnar og hún eru ótrúlegar dúllur, hann er spiderman og hún er prinsessa var mér tjáð áðan. Við erum svo vonandi að fara að flytja á föstudaginn því við förum til Spánar á mánudaginn Undecided þetta á eftir að vera svolítið knapt held ég en hlýtur að ganga upp.

Nóg í bili Edda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband